Bananabrauð
1 Egg
150 g Sykur
2 Þroskaðir bananar
250 g Hveiti
1/2 tsk Matarsódi
1 tsk Salt
Þeytið eggin og bætið sykrinum saman við í skömmtum. Þeytið vel saman við eggið í hrærivél. Merjið bananana með gaffli og hrærið saman við eggið í hrærivél. Sigtið saman hveiti, matarsóda og salt og hrærið léttilega saman við bananablönduna með sleif. Setjið í vel smurt aflangt form, 1 1/2 lítra og bakið við 180° C en 160° C með blæstri í 45 mínútur.
Speltbollur
1 dl Mjólk
1 dl Heitt vatn
2 msk Olía
1 msk Púðursykur
2 tsk Þurrger
1/4 tsk Salt
3 dl fínt Spelt
1 dl gróft Spelt
1/4 dl Hveitiklíð
Blandið saman heitu vatni og kaldri mjólk þannig að úr verði volg blanda. Blandið olíunni saman við. Látið allt annað í skálina og hrærið vel saman. Látið deigið lyfta sér í skálinni, á volgum stað með stykki yfir, ef tími er til þess. Hnoðið deigið en bætið við hveiti ef þarf, deigið á ekki að klístrast við hendurnar en næstum því. Passið að láta ekki of mikið hveiti því þá verður deigið þurrt og vont að eiga við það. Mótið bollur eða annað smábrauð og látið það lyfta sér á plötunni í 10-15 mínútur. Penslið bollurnar með eggjablöndu eða mjólk og stráið korni eða fræjum á þær. Bakið bollurnar í 10-15 mínútur við 200° C og blástur.
Skonsur
3 bollar Hveiti
1 bolli Sykur
2 tsk Lyftiduft
2 Egg
3 bollar Mjólk
Öllum þurrefnunum er blandað saman, því næst er eggjunum ásamt ca helmingi af mjólkinni bætt út í. Síðan er öllu blandað saman og svo er restinni af mjólkinni blandað saman við. Pannan er hituð þar til hún er orðin nægilega heit. Smá slettu af deiginu skellt á pönnuna, þar sem það dreifir sér sjálft. Beðið þar til loftgöt fara að myndast og þá er skonsunni snúið.
Kryddbrauð
3 dl Haframjöl
3 dl Hveiti
3 dl Sykur
2 msk Kakó
3 dl Mjólk
1 stk stórt Egg
1 tsk Kanill
1 tsk Negull
1 tsk Engifer
2 tsk Natron
Öllu hrært vel saman. Bakað í smurðu móti í ca 40 mínútur við 175-200° C.
Snúðar
1 kg Hveiti
125 g Sykur
125 g Smjörlíki
2 bréf Perluger
1/2 lítri Mjólk
Kanilsykur
Smjörlíkið er brætt, mjólkin sett út í og síðan gerið. Öllu er blandað saman og látið hefast í 1 klukkustund. Hnoðið deigið upp, fletjið út og smyrjið smjörlíki á það og stráið kanilsykri yfir. Rúllið deiginu upp og skerið í bita. Látið hefast í 45 mínútur. Bakið við 220° C í 15-20 mínútur.
Heilsubrauð
3 dl Hveiti
3 1/2 dl Heilhveiti
1 1/2 dl Hveitiklíð (eða kornblöndu t.d. 6 korn)
2 msk Haframjöl
1 msk Sykur
2 msk Lyftiduft
1 tsk Salt
2 1/2 dl Súrmjólk
2 1/2 dl Undanrenna
Allt sett í skál og hrært saman. Deigið er síðan sett í smurt jólakökuform og bakað í 1 klukkutíma við 180° C neðarlega í ofni. Ath. leggið bökunarpappír yfir formið fyrstu 20 mínúturnar, þá verður brauðið fallegra.
Gulrótakaka
5 dl Hveiti
2 tsk Lyftiduft
1 1/2 tsk Matarsódi
1 tsk Salt
2 tsk Kanill
1 tsk Múskat
5 dl Sykur
2 dl Matarolía
4 Egg
5 dl Gulrætur
1/2 dós kurlaður Ananas (safinn er ekki notaður)
2 1/2 dl Hnetur
Krem
150 g Rjómaostur
250 g Flórsykur
Sítrónusafi eftir smekk
Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti, kanil, múskati og sykri. Rífið gulræturnar og grófsaxið hneturnar. Hrærið egg og olíu og blandið með sleif saman við hveitiblönduna ásamt ananas, gulrótum og hnetum. Setjið deigið í stórt, smurt form, t.d. ofnskúffu og bakið neðarlega í ofni í u.þ.b. klukkustund við 180° C. Kælið kökuna.
Krem: Hrærið saman rjómaost, flórsykur og sítrónusafa og setjið á kalda kökuna.
Skúffukaka
2 1/2 bolli Hveiti
1 1/2 bolli Sykur
1 tsk Lyftiduft
1 tsk Matarsódi
1/2 tsk Salt
1/2 bolli Kakó
1/2 bolli brætt Smjörlíki
2 stk Egg
1/3 bolli heitt Vatn
1 tsk Vanilludropar
1 bolli Mjólk
Krem
2 msk brætt Smjörlíki
4 msk Kaffi
2 msk Kakó
3 msk Flórsykur
Eggjarauður
Bakað við 150-170° C í ca 30 mínútur.