Heiðarsel - Ýmsar upplýsingar

Viðtalstímar
Leikskólastjóri og deildarstjórar hafa ekki fastan viðtalstíma en foreldrar geta ávallt fengið viðtal ef þeir óska þess.

Fréttabréf
Fréttabréf kemur út fjórum til fimm sinnum á ári.  Foreldrar fá upplýsingar um það helsta sem er að gerast í leikskólanum og ýmsum hagnýtum upplýsingum er komið til foreldra.

Heimasíða leikskólans
Leikskólinn er með heimasíðu: http://reykjanesbaer.is/heidarsel. Þar koma fram allar upplýsingar um skólann, ýmsar fréttir úr starfinu eru settar inn, foreldrar geta skoðað matseðil fyrir hvern mánuð í senn, einnig eru myndir í leik og starfi settar inn reglulega. Á heimasíðunni má einnig finna fréttapistla frá hverri deild sem settir eru inn í hverjum mánuði eða oftar.

Fatnaður
Leikskólinn er vinnustaður barnanna, því er nauðsynlegt að börnin séu í fatnaði sem gerir þeim kleift að taka þátt í öllu starfi leikskólans hvort sem það er hreyfing, frjáls leikur, málningarvinna eða útivera. Aukaföt þurfa alltaf að vera í töskunni/fatakassa til að grípa í ef óhapp á sér stað. Útifatnaður fer eftir veðri hverju sinni en mikilvægt er að hann sé víður og þægilegur svo hann hindri ekki hreyfingar barnanna.  Besti útiklæðnaðurinn er ullar og flísfatnaður og léttur vatns- og vindheldur fatnaður utan yfir. Ullarsokkar og víður skófatnaður koma í veg fyrir kulda á fótum. Í fataklefa er mikil áhersla lögð á að börnin hjálpi sér sjálf og taki ábyrgð á að klæða sig rétt og skynsamlega. Við kippum okkur ekki upp við það ef fötin snúa ekki alveg rétt heldur er aðalmálið að barnið klæði sig sjálft. 

Vinsamlegast merkið fatnað barnanna, merkt föt týnast síður.

Lögreglan/brunavarnir
Lögreglan kemur í heimsókn til okkar allt að tvisvar á ári, hún spjallar við börnin um ýmislegt er varðar öryggi þeirra í umferðinni.  Einu sinni á ári er brunaæfing fyrir allan skólann, slökkviliðsmenn koma einnig og kynna fyrir okkur brunavarnir. Það er gott fyrir börnin að kynnast lögreglu og slökkviliðsmönnum og sjá að þetta eru bara venjulegir menn sem ekki þarf að hræðast.

Leikskólinn lokaður
Starfsfólk í leikskólum Reykjanesbæjar á rétt á fjórum skipulagsdögum á ári, dagarnir eru nýttir til að skipuleggja, undirbúa og endurmeta starfið.  Leikskólinn er lokaður á skipulagsdögum en þeir eru auglýstir með mánaðar fyrirvara.  Leikskólinn er lokaður 5 vikur á ári vegna sumarleyfa.  Leikskólar Reykjanesbæjar skiptast á sumarleyfistímum þannig að aldrei er lokað á sama tíma tvö ár í röð. 

Leikföng

Það vekur gjarnan ákveðna öryggiskennd hjá barninu að hafa með sér leikföng að heiman, t.d. dúkku, bangsa eða bíl.  Við setjum okkur ekki upp á móti því en allt er gott í hófi.  Börnin fá að hafa leikföngin inni smástund en geyma þau síðan í hólfinu sínu, best er að barnið komi aðeins með eitt leikfang í einu.  Hafa ber í huga að við berum ekki ábyrgð á leikföngunum og að stríðsleikföng eru ekki í boði í leikskólanum.

Lyf-lyfjagjöf
Æskilegt er að foreldrar hagi lyfjagjöf barna sinna þannig að leikskólinn þurfi ekki að bera ábyrgð á henni. Ef ekki verður hjá því komist gilda eftirfarandi reglur um lyfjagjöf og meðferð lyfja sem eru sameiginlegar fyrir alla leikskóla Reykjanesbæjar. Skrifleg fyrirmæli þarf frá foreldrum um lyfjagjöfina. Öll lyf eru geymd í læstum skáp. Deildarstjóri á hverri deild felur einum starfsmanni ábyrgð á lyfjagjöf barns/barna.

Óhöpp og slys 
Leikskólinn er ábyrgur fyrir barninu þann tíma sem það dvelur þar.  Detti barnið hjá okkur eða meiði sig á annan hátt það illa að við teljum öruggast að leita læknis, borgar leikskólinn lækniskostnaðinn.  Í slíkum tilfellum reynum við að hafa samband við foreldra svo þeir geti farið með barnið til læknis en náist ekki í foreldra förum við með barnið til læknis.  Slys sem verða í leikskólanum eru skráð niður á sérstakt eyðublað, þannig gefst okkur tækifæri á að fylgjast með hvernig, hvar og hvenær þau verða helst og hvar úrbóta er þörf.

Ársáætlun/dagatal
Á hverju hausti er unnin ársáætlun fyrir hvert skólaár, frá 1. september til
31. ágúst.  Í ársáætlun koma fram helstu þættir sem áætlað er að taka fyrir næsta skólaár, t.d. foreldrafundir, ýmsar ferðir og viðburðir sem eru á dagskrá.  Ársáætlun er dreift til allra foreldra á haustin.

Ársskýrsla
Samkvæmt lögum ber leikskólastjóra að gera rekstraraðila grein fyrir starfi liðins árs.  Ársskýrsla er unnin eftir ákveðnu formi, því sama fyrir alla leikskóla Reykjanesbæjar.  Eintak af ársskýrslu leikskólans liggur frammi á öllum deildum Heiðarsels fyrir foreldra, einnig er hún sett á heimasíðu leikskólans.  Leikskólafulltrúi vinnur sameiginlega ársskýrslu fyrir alla leikskóla Reykjanesbæjar og er hún meðal annars send Skóla- og fræðsluráði Reykjanesbæjar.