Heiðarsel - Málörvun

Lestrarmenning í Reykjanesbæ er þriggja ára þróunarverkefni sem hrundið var af stokkunum til að efla lestrarfærni og málskilning barna í sveitarfélaginu (2003-2006). Um er að ræða samfélagslegt verkefni sem nær til leik-og grunnskóla, bókasafns, fjölskyldu og félagsþjónustu, heilsugæslu, menningar- og tómstundastarfs bæjarins auk ýmissa annarra stofnana og samtaka hér í bæ og bæjarbúa allra.

Leikskólinn Heiðarsel hefur sett sér markmið um lestramenningu:

  • Að auka málskilning og orðaforða og örva skýran framburð
  • Að undirbúa börnin fyrir lestrarnám
  • Að vinna forvarnarstarf gegn lestrarörðugleikum
  • Að starfsfólk og börn verði meðvitaðri um málið og þá möguleika sem það býður upp á, til gagns og gamans
  • Að börn læri að bera virðingu fyrir málinu og bókum
  • Að njóta gleði við lestur og í málörvun
  • Að gera leikskólastarfið sýnilegra

Á Heiðarseli fer fram mikil málörvun í daglegu starfi, hér er ritmálið sýnilegt og mikið er sungið og lesið. Mikilvægt er að lesa daglega fyrir börnin því lestur eykur almennan orðaforða, hugtakaskilning, einbeitingu, athygli og almennan lesskilning sem er undirstaða fyrir frekara nám.   
Á þessu skólaári var ákveðið að vera með markvissa málörvun í öllum aldurshópum 2-6 ára. Búið er að gera áætlun og fara börnin einu sinni til tvisvar í viku í málörvun, stuðst er við bækurnar Markviss málörvun og Ljáðu mér eyra. Einnig verða teknar fyrir ákveðnar þulur og vísur fyrir hvern mánuð í leikskólanum. Verkefnastjóri lestrarmenningu er Ólöf Kristín Guðmundsdóttir deildarstjóri.