Samstarf heimilis og leikskóla hefst áður en barnið byrjar í leikskólanum. Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið og foreldra þess. Allt er framandi og ókunnugt og því er mikilvægt að vel sé staðið að aðlögun í upphafi. Hvernig til tekst í byrjun getur haft áhrif á alla leikskólagöngu barnsins.
Á aðlögunartíma er mikilvægt að foreldrar kynnist kennurum deildarinnar og því starfi sem fram fer í leikskólanum, segja má að foreldrar séu einnig í aðlögun um leið og barnið. Með því er lagður góður grunnur að samstarfi í framtíðinni. Við vinnum eftir ákveðinni áætlun en hafa ber í huga að þessi aðlögunartími getur aldrei staðist fyrir öll börn. Aðlögun fer eftir aldri og aðstæðum hvers barns fyrir sig og er alltaf samkomulagsatriði milli leikskólakennara og foreldra.