Heiðarsel - Fréttabréf

 Þúfan
-  Fréttabréf Foreldrafélags Heiðarsels -
- Nóvember 2010 -

Aðalfundur
Aðalfundur Foreldrafélagsins var haldinn þann 28. september. Ný stjórn var kynnt en tveir nýir stjórnarmeðlimir bættust í hópinn. Við bjóðum þær Þórdísi og Danijelu velkomnar í stjórn foreldrafélagsins. Farið var yfir það sem foreldrafélagið stóð fyrir á síðasta ári og var það eftirfarandi:
. Íþróttadagur í Heiðarskóla, það var góð þáttaka og skemmtu börnin og foreldrar sér vel saman.
. Sameiginlegur fyrirlestur foreldrafélaga í Reykjanesbæ. Gylfi Jón Gylfason.
. Fréttabréfið "Þúfan" gefin út í nóvember
. Jólaball í Holtaskóla 5. desember 2009, eins og alltaf mættu mörg börn með systkinum sínum og foreldrum og dönsuðu í kringum jólatréð, borðuðu kökur og drukku svala. Mesta skemmtunin var samt eflaust þegar nokkrir jólasveinar birtust og gáfu öllum börnum pakka (púsl)
. Borgað í jólaleikriti sem sýnt var á leikskólanum í desember. Vakti það mikla lukku meðal nemenda. 
. Fjóla tröllastelpa kom í heimsókn á leikskólann í desember
. Páskaeggjaleit 28. mars 2010, öll börn sem tóku þátt fengu páskaegg, muffins og svala
. Bakkelsi fyrir starfsfólkið í maí
. Leikskólanum afhent bókakarfa með nýjustu bókunum í maí
. Íþróttaálfurinn kom og skemmti börnunum á sumarhátíðinni í júní
. Elstu nemendum leikskólans var boðið út að borða á Langbest í útskriftarferðinni þeirra

Heiðarsel 20 ára
Þann 8. október varð Heiðarsel 20 ára og óskum við starfsfólkinu innilega til hamingju með það. Þar sem Heiðarsel er heilsuleikskóli með áherslu á hollan mat og hreyfingu, þá fannst okkur við hæfi að afmælisgjöfin frá foreldrafélaginu tengdist því. Á afmælishátíðinni afhentum við því dýnu og bolta til að nota í hreyfingunni. Við erum vissar um að þetta mun koma að góðum notum.

Félagsgjald
Ákveðið var að hafa sama gjald og á síðasta ári, 2500 krónur á heimili. Gíróseðillinn var settur í hólfin hjá börnunum nýlega og greiða á gíróseðilinn í nóvember. Við minnum á að með því að greiða félagsgjaldið hjálpast allir að við að greiða niður viðburði, fyrirlestra og annað fyrir börnin okkar.

Á döfinni hjá okkur...

Jólaball
Jólasveit Tónlistarskólans mun leika fyrir dansi. Haldið verður í hefðir og hver fjölskylda er hvött til að koma með eitthvað með sér sem sett verður á hlaðborð. Foreldrafélagið sér um drykkjarföng, diska og þess háttar. Jólaballið verður auglýst nánar síðar í leikskólanum.

Stjórn foreldrafélags Heiðarsels 2010 - 2011

Edda Guðrún Pálsdóttir - formaður

Guðlaug María Lewis - gjaldkeri

Hrund Hólm - ritari

Danijela  Zivojinovic - meðstjórnandi

Elínborg Herbertsdóttir - meðstjórnandi

Eygló Pétursdóttir - meðstjórnandi

Fjóla Jórunn Guðmundsdóttir - meðstjórnandi

Þórdís Lúðvíksdóttir - meðstjórnandi

Halla Björk Sæbjörnsdóttir  - tengiliður leikskóla